Tuesday, March 25, 2014

Bloggos numeros uno

Hallú :)


Dem hvað mér finnst skrítið að byrja blogga aftur, hef ekki gert það síðan í grunnskóla EN það er alltaf svo gott og gaman að skottast aðeins út fyrir þægindarammann og fylgja klikkuðu hugmyndunum sínum eftir og gera eitthvað úr þeim :) Hér langar mig að klína niður á blað hvað ég er að bralla, hvernig mér gengur að léttast, hvernig ég er að breyta lífsstílnum mínum, hvernig ég borða, hvernig ég æfi .. auðvitað með dassi af almennu væli og heimskulegum pælingum! 



Mig langar líka rosalega að vera svolítið hvetjandi, langar svo að fólk fatti að maður getur gert allt sem maður vill, maður þarf bara að vinna að því á hverjum degi, hugsa um það alltaf, vera fókuseraður og ÆTLA. Maður á eftir að misstíga sig.. Það á einhver eftir að segja manni að maður geti ekki það sem manni langar.. Maður verður bara að halda áfram sama þótt móti blási og maður mun uppskera! Maður tekur kannski eitt skref aftur á bak en þá er um að gera að taka bara þrjú áfram í staðin!



Í dag þá átti ég hrikalega góðan dag! Matarræði mitt var í toppstandi, hefði ekki getað verið betra, herbalifeshake í morgun- og hádegismat, hrökkkex með eggi í kaffitímanum, próteinsjeik eftir æfingu og eggjaommiletta með spínati, broccoli, papriku og avocado í kvöldmat. Í dag tók ég hriikalega lappaæfingu, beygði, gerði rassaæfingar, tók hiit æfingu á hlaupabrettinu, hnébeygjuhopp og tók einhverjar æfingar í einhverjum tækjum sem ég ætla ekki einu sinni að reyna finna nöfn fyrir :) 


Þetta blogg er nú aðallega fyrir mig, til þess að skerpa fókusinn minn enn betur, kannski líka til að halda mér aðeins við að skrifa, hef nefnilega tekið eftir á þessu ári sem ég hef verið frá skóla að mínum rithæfileikum hafa hrakað mjög mikið og ég er eiginlega bara orðin voðalega illa skrifandi! Ekkert mál að æfa það upp aftur, verð nú sérstaklega að huga að því þar sem ég fer sennilegast í háskólann í haust að læra félagsfræði. Hef svo hugsað mér að fara í ráðgjöf út frá því og langar hrikalega að starfa sem námsráðgjafi þegar ég er orðin stór(fullorðin, er alveg nógu stór fyrir) :) 

Heyrið, þetta er bara meira en nóg í dag, vona að einhver nenni að lesa :)
Hundrað rokkstig fyrir þig fyrir að hafa klárað að lesa þetta! :D

-Svandís Þóra 


No comments:

Post a Comment