Hellú :D
Þetta er búinn að vera fínasti dagur! Fór í vinnuna, vann eins og motherfucker frá 9-6 eins og vanalega, skoppaði svo í ræktina með mister guggz og tók á því :) Gerðum fullt af axlaæfingum, tók svo hiit-æfingu á hjóli og DAYUM, hef alltaf bara gert hiit á hlaupabretti, held ég færi mig alfarið yfir á hjólin í þeim æfingum because IT BUUURNS! 100% erfiðara en á hlaupabrettinu, allavega fyrir mig, náði að push-a mér lengra á hjólinu og var almennt miklu sáttari með það en á hlaupabrettinu.
Jæja hennti inn mynd af kvöldmatnum mínum, 2 litlar bringur, smá spínat, slatti af gúrku, pínu paprika, pínu fetaostur og ca 5 bitar af sætri kartöflu. Hrikalega gott, kjúllinn var vel spicy með cayanne og kjúllakryddi. Annað sem ég borðaði í dag var herbalife-shake í morgunmat og kjúklingur, ein bringa og eitt læri í hádegismat (ekkert með .. átti ekki pening og lét mér þetta bara nægja, allt góða grænmetið heima og ég föst í vinnuni). Skyr og banani í kaffitímanum, próteinshake eftir æfinguna og svo þessi dýrindisdrulla sem myndin er af í kveldmat :) Langar að henda inn tvem myndum sem ég púslaði saman fyrir þónokkru síðan, sem sýna pínu árangur hjá mér! Hlakka reyndar til að taka bráðum mynd til að update-a, er búin að vera svo dugleg :D! Fyrirmyndin er reyndar eftir 6 vikur á Herbalife (thank god að það er ekki til mynd af mér fyirir það). En já here it comes!
Oh god, the horror .. Eeeeen svona er þetta, einhverntíman er veltipunktur í lífinu og maður þarf aðeins að girða sig í brók og taka á málunum :). Hlakka til að geta hennt inn nýjum árangursmyndum því þessar eru alveg mánðargamlar eða eitthvað svoleiðis :(.. Þær eru líka alveg ekki alveg nógu vel púslaðar saman, en þið fattið alveg hvað ég er að fara með þessa breytingu :) hehööömm.
En eitt sem mig langar geðveikt mikið að tala um!! Það eina sem ég hugsa um þessa dagana!! Það að ég er að fara á Akureyri fyrstu helgina í Apríl. It will be amazing! Hlakka pínu til að djamma með elsku krúttlegustu, sætustu, bestustu og mest amazing vinunum mínum á Akureyri, hitta alla og sjá alla sem ég hef ekki séð lengi, hitta tengdafamily, smella mér í heimsókn til ömmu, hitta systur mínar, gera allt sem ég hef ekki gert alltof lengi! Vá er orðin alltof æst hérna.. Anywho, þetta verður hrikalega gaman og ég hlakka mjög mikið til! Eeen jab, er eiginlega ekki lengur að nenna hanga í tölvunni, held líka að athyglissjúki krútt-kærasta-klumpurinn minn þurfi athygli :)
-Svandís Þóra